Prjón og spjall fyrir ungt fólk
Viðburðir
Bókasafn Garðabæjar
þriðjudagur, 14. júlí 2026 kl. 17:30 - 18:45

Ungmennaprjón á bókasafninu.
Ert þú mikið fyrir að prjóna eða hekla? Komdu og eigðu notalega stund með áhugasömu ungu hannyrða fólki. Það verður kósý stemning þar sem við spjöllum saman, prjónum, heklum og njótum samverunnar. Hvort sem þú ert að prjóna peysu, hekla tösku eða ert nýbyrjuð í handavinnu, þá er pláss fyrir þig. Fyrir ungt fólk 15 ára +. Markmiðið er einfaldlega að eiga skemmtilega stund, fá innblástur, kynnast fleirum sem deila sama áhugamáli. Hittumst 4 sinnum í sumar með starfsmanni bókasafnsins. 14.júlí, 21.júlí, 4.ágúst og 11.ágúst klukkan 17.30 i um það bil klukkustund.