Beint í efni

Saumó - sýn­ing­ar­opn­un í Hönn­un­ar­safn­inu

Viðburðir

Hönnunarsafn Íslands

laugardagur, 29. ágúst 2026 kl. 14:00 - 17:00

Saumó er hluti af sýningaröðinni „Heimsókn“ á Hönnunarsafni Íslands. Gestir fá að upplifa sig sem “flugu á vegg” og gægjast á framgang saumaklúbba. Safneign verður skoðuð í nýju ljósi með því að setja handverk og saumaklúbba í samhengi við íslenska hönnunarsögu og heimilið.

Hvað er eiginlega gert í saumaklúbb? Hámað í sig hundrað sortum af kökum, kjaftað og saumað út í eitt? Heimilisfólki er almennt vísað út á meðan klúbbshittingur stendur yfir svo háttsemi klúbbana verður öðrum dularfull: Hvað fer þarna fram? Hvaða hlutverki gegna þeir? Hvaða handverk er unnið? Hvað er rætt?

Velkomin á opnun Saumó í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg.