Beint í efni

Skap­andi sunnu­dags­smiðjur - Hreið­ur og egg með ÞYKJÓ

Viðburðir

Hönnunarsafn Íslands

sunnudagur, 31. maí 2026 kl. 13:00 - 15:00

Hönnunarsafn Íslands

Ertu glysgjarn eins og krummi eða kannski algjör vefnaðarmeistari eins og maríuerla? Við æfum okkur í að vefa úr fjölbreyttum efnivið og leitum innblásturs hjá spörfuglum sem eru nú í óðaönn að vefa hreiður fyrir ungana sína úti um allar koppagrundir.

Við mótum egg úr leir og skoðum hvernig náttúran hefur hannað egg á fjölbreyttan og snjallan hátt - sum eru í felulitum, önnur eru dropalaga svo að þau rúlli ekki fram af klettabrún.

Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Skapandi sunnudagssmiðjur fyrir börn og fjölskyldur sem eru mánaðarlega í Hönnunarsafni Íslands á vegum Menningar í Garðabæ. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!