Sumaropnun í burstabænum Króki
Krókur á Garðaholti
sunnudagur, 2. ágúst 2026 kl. 11:30 - 15:30

Burstabærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar frá kl. 11:30-14:30 og aðgangur er ókeypis.
Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Krókur er staðsettur í nágrenni samkomuhússins á Garðaholti þar sem eru bílastæði. Yfir sumartímann, frá júní og út ágúst, er Krókur opinn almenningi á sunnudögum frá klukkan 11:30-14:30. Aðgangur er ókeypis.
Saga Króks
Um vorið 1934 fékk Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir ábúð á Króki en maður hennar var Vilmundur Gíslason. Þau hjónin áttu fjögur börn og Guðrún Sveinsdóttir móðir Vilmundar bjó einnig hjá þeim. Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir (kölluð Tobba) var fædd 1. maí árið 1899. Í Króki var búið allt til ársins 1985 þegar Þorbjörg lést.
Afkomendur Þorbjargar og Vilmundar í Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998.
Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar.