Tónlistarnæring Þórgunnar Önnu og Bjargar Brjánsdóttur
Tónlistarskóli Garðabæjar
kl. 12:15

Björg Brjánsdóttir, flautuleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, söngkona, flytja fjölbreytta tónlist fyrir flautu og söngrödd á síðustu hádegistónleikum vorannar í röðinni Tónlistarnæring.
Á tónleikunum mun m.a. hljóma verk eftir grænlenska tónskáldið Arnannguaq Gerstrøm, sem samið er fyrir dúóið - og heyrist nú í fyrsta sinn á Íslandi - ásamt verkum eftir Finn Karlsson, Þórunni Guðmundsdóttur og hina skosku Theu Musgrave, í bland við íslensk þjóðlög.
Björg og Þórgunnur stofnuðu til samstarfs árið 2024 og hafa síðan bæði haldið opinbera tónleika sem og komið fram við ýmis tilefni, svo sem við opnun Bókmenntahátíðar í Reykjavík 2024. Dúóið leggur upp úr því að flytja nýjar tónsmíðar í bland við eldri tónverk og hefur þegar frumflutt þrjú verk, ásamt því að hafa ýmislegt í bígerð og fleiri verk á leiðinni.
Aðgangur er ókeypis.