Virkniþing eldra fólks í Garðabæ
Viðburðir
Miðgarður
þriðjudagur, 29. september 2026 kl. 10:30 - 14:00

Virkniþing eldra fólks verður haldið 29. september í Miðgarði.
Boðið verður upp á fimm hreyfistöðvar um morguninn og er öllum velkomið að koma og taka þátt. Engin þörf á skráningu bara mæta. Hægt er að velja sér tvær stöðvar, eina kl.10:30 og aðra kl.11:20.
Klukkan 12 verður þátttakendum boðið upp á súpu. Eftir matarhlé er boðið upp fyrirlestra um heilsu og bættan lífsstíl.