Eignaskiptayfirlýsing
Eignaskiptayfirlýsing er aðalheimildin um skiptingu fjöleignarhúss í séreign og sameign og getur komið í veg fyrir margvíslegan ágreining milli eigenda.
Hvað kemur fram í eignaskiptayfirlýsingu?
Eignaskiptayfirlýsing er lögboðinn skriflegur samningur eigenda fjöleignarhúss sem geymir lýsingu á húsi og lóð og skiptingu þeirra. Á grundvelli hennar ganga eignarhlutar kaupum og sölum, eru veðsettir og opinber gjöld lögð á þá. Hún stýrir einnig meðal annars kvöðum, skiptingu tiltekins kostnaðar í húsinu og vægi atkvæða á húsfundum í vissum tilvikum.
Yfirlýsingin inniheldur meðal annars:
- skiptingu fjöleignarhúss í eignarhluta (séreignir, sameign allra og sameign sumra)
- hvað fylgir séreignarhlutum sérstaklega
- réttindi og skyldur eiganda til hluta byggingar, lóðar, bílskúra og bílastæða
Nánari efnisatriði yfirlýsingarinnar má finna í 8. grein reglugerðar um eignaskiptayfirlýsingar í fjöleignarhúsum.
Er til eignaskiptayfirlýsing fyrir þitt hús?
Samkvæmt lögum um fjöleignarhús er eigendum fjöleignarhúsa skylt að láta gera eignaskiptayfirlýsingu fyrir húsið og þinglýsa henni ef fullnægjandi og skýr skiptasamningur liggur ekki fyrir. Þú getur fengið upplýsingar um hvort að gerð hefur verið eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið þitt hjá sýslumönnum.
Staðfesting byggingarfulltrúa fyrir þinglýsingu
Byggingarfulltrúi fer yfir eignaskiptayfirlýsingu áður en henni er þinglýst og staðfestir að hún sé í samræmi við samþykktar teikningar og sé unnin í samræmi við reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar.
Senda eignaskiptayfirlýsingu til byggingarfulltrúa
Aðeins þeir sem hafa til þess leyfi frá ráðherra mega taka að sér að gera eignaskiptayfirlýsingar. Lista yfir leyfishafa er að finna á vef félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Þú sendir eignaskiptayfirlýsingu til byggingarfulltrúa í Þjónustugátt Garðabæjar.
Með umsókninni þurfa að fylgja eignaskiptayfirlýsing á PDF auk skráningartöflu.
Gjaldskrá
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.