Beint í efni

Fast­eigna­gjöld

Fasteignagjöld

Álagningarseðlar fasteignagjalda eru aðgengilegir inni á Þjónustugátt Garðabæjar og á Mínum síðum á Ísland.is. Álagningaseðlar eru ekki sendir út á pappír. 

Á álagningarseðlinum má finna upphæðir fyrir:

  • fasteignaskatt
  • lóðarleigu
  • gjald fyrir vatn, rotþró, fráveitu og sorphirðu

Ef eigendur fasteignar eru fleiri en einn bera þeir sameiginlega ábyrgð á greiðslu fasteignagjalda og verða sjálfir að annast skiptingu þeirra.

Gjalddagar

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2026 eru 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.

Í þeim tilvikum sem fasteignagjöld ársins eru 25.000 kr eða lægri er aðeins einn gjalddagi: 15. apríl 2026.

Álagn­ing fast­eigna­gjalda

Íbúðarhúsnæði

Atvinnuhúsnæði / aðrar fasteignir

Fasteignaskattur (hlutfallaf fasteignamati)

0,149%

1,49%

Lóðarleiga (hlutfallaf fasteignamati)

0,4%

1,0%

Vatnsgjald (hlutfallaf fasteignamati)

0,071%

0,071%

Rotþróargjald

Sjá neðar

-

Sorphirðugjald

Sjá að neðar

-

Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega

Við álagningu er elli- og örorkulífeyrisþegum veitt lækkun eða niðurfelling samkvæmt reglum um viðmiðunarfjárhæð tekna. Afsláttur reiknast sjálfkrafa og ekki þarf að sækja um lækkunina. Skilyrði lækkunar eða niðurfellingar er að um sé að ræða íbúðarhúsnæði þar sem greiðandi á lögheimili.

Einstaklingar:

  • Einstaklingar með tekjur árið 2024 allt að 7.332.000 kr. greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
  • Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 6.400 kr. og fellur niður ef tekjur fara yfir 7.972.000 kr.

Hjón:

Hjón með tekjur árið 2024 allt að kr. 9.331.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 15.400 og fellur niður ef tekjur fara yfir 10.871.000 kr.

Gjald­skrár

Fráveitugjöld og tengd gjöld

Gjald

Álagningarstofn

Hlutfall / fjárhæð

Athugasemd

Fráveitugjald

Fasteignamat

0,074%

Greiðist árlega. Engin álagning ef ekkert mannvirki er á lóð.

Stofngjald fráveitu (ef innheimt)

Fast

300.000 kr.

Breytt árlega miðað við byggingarvísitölu. Grunnvísitala des 2025: 126,5.

Rotþróargjald

Fasteignamat

0,12%

Greiðist árlega þar sem fráveituvatn fer í rotþró.

Taðþróargjald (Kjóavellir)

Hesthús

456.913 kr.

Gildir til 30. júní 2026.

Forsendur og skýringar

• Fráveitu- og rotþróargjöld eru tryggð með lögveðsrétti í fasteignum (samkvæmt gjaldskrám).

Sorphirðugjöld

Úrgangsflokkur

Stærð íláts (lítrar)

Gjald (kr.)

Blandaður úrgangur

240 l

51.285

Blandaður úrgangur

660 l

141.034

Blandaður úrgangur

Djúpgámur

1.068.439

Pappír/pappi

240 l

8.428

Pappír/pappi

660 l

23.147

Pappír/pappi

Djúpgámur

175.585

Plast

240 l

9.389

Plast

660 l

25.820

Plast

Djúpgámur

195.602

Matarleifar

140 l

12.881

Matarleifar – gámur

3.000 l

276.018

Tvískipt (matarleifar/blandað)

240 l

39.604

Tvískipt (pappír/plast)

240 l

17.817

Annað

Gjald

Eining

Rekstur grenndar- og endurvinnslustöðva

23.147 kr.

íbúð

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu (akstur/skráning íláta)

4.200 kr.

fyrir hvert sinn

Forsendur og skýringar

• Gjalddagar eru þeir sömu og fasteignagjöld; eindagi 30 dögum síðar.

• Gjaldskrá er sett meðal annars með heimild í lögum um meðhöndlun úrgangs og hollustuhætti.

Vatnsgjald, notkunargjald og heimæðargjöld

Liður

Gjald / viðmið

Stofn vatnsgjalds (álagning 2026)

0,071% af fasteignamati (breyting frá gjaldskrá nr. 1221/2018)

Notkunargjald

27,10 kr./m³ (m.v. BVT des 2018 141,6; breytist árlega)

Flokkur

Ø (mm)

Grunngjald (kr.)

Viðbótargjald >30m (kr./m)

A) Einbýli/par/raðhús

32

341.078

8.238

B) Fjölbýli (án sprinkler)

40

401.377

11.712

B) Fjölbýli (án sprinkler)

50

474.173

12.947

B) Fjölbýli (án sprinkler)

63

531.046

14.418

D) Iðnaðarhús

75

552.615

D) Iðnaðarhús (m/sprinkler)

90

821.382

D) Iðnaðarhús (m/sprinkler)

110

1.025.907

D) Iðnaðarhús (m/sprinkler)

160

1.681.075

25.940

Önnur gjöld

Gjald

Eining

Viðbótargjald v/ jarðvinnu (gröftur fyrir ídráttarör)

22.915 kr.

pr. m

Koma fyrir ídráttaröri – efni og vinna

8.238 kr.

pr. m

Klaki/klöpp allt að 50 cm

7.425 kr.

pr. m

Klaki/klöpp allt að 100 cm

19.304 kr.

pr. m

Klaki/klöpp allt að 150 cm

26.728 kr.

pr. m

Byggingarvatn tenging (heildarverð)

114.844 kr.

heild

Byggingarvatn aftenging/tenging og frágangur

99.723 kr.

heild

Byggingarvatn notkun

230 kr.

á dag

Stærð mælis

Mælaleiga pr. dag

Mælaleiga pr. ár

15 mm

53,59 kr.

19.562 kr.

20 mm

54,52 kr.

19.900 kr.

25 mm

70,21 kr.

25.626 kr.

32 mm

78,67 kr.

28.715 kr.

Forsendur og skýringar

• Heimæðargjöld í töflu gilda 1.1.2026–30.6.2026 (endurreiknuð á 6 mánaða fresti).

• Breyting á vatnsgjaldsstofni fyrir álagningu 2026 er í sér auglýsingu.

Nánari upplýsingar

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar getur þú haft samband við þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða sent tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is.