Rafrænir reikningar
Hér finnur þú upplýsingar um hvernig söluaðilar geta sent reikninga til Garðabæjar.
Garðabær tekur á móti rafrænum reikningum og hvetur söluaðila til þess að senda reikninga með rafrænum hætti.
Mælt er með að söluaðilar gefi út reikninga í sínum kerfum á svokölluðu XML formi og miðli í gegnum skeytamiðlara. Bókhaldsdeild Garðabæjar sér um að taka við reikningum á rafrænu formi fyrir hönd stofnana bæjarins. Þjónustuaðilar fjárhagskerfa og skeytamiðlarar veita ráðgjöf um útgáfu og miðlun rafrænna reikninga.
Garðabær tekur við reikningum í gegnum eftirfarandi skeytamiðlun:
https://gardabaer.peppol.is/
Söluaðilar án bókhaldskerfis
Aðilum sem eru án bókhaldskerfis er bent á, að á markaði er allskyns bókhaldsþjónusta í boði og ýmis bókhaldskerfi á vefnum sem rekstraraðilar geta nýtt sér til að senda rafræna reikninga.
Ef bókhalds og sölukerfi eru ekki tengd við skeytamiðlara má skrá reikning handvirkt í gegnum móttökugátt reikninga, hér er hlekkur á hana: Móttökugátt Garðabæjar
Aðilar sem einungis gefa út reikninga á pappír skulu senda okkur reikningana í bréfapósti, þeir sem gefa út reikninga á tölvutæku formi geta sent reikningana sem viðhengi í tölvupósti á bokhald@gardabaer.is. Ekki gera hvoru tveggja.
Fyrir aðila sem senda fáa reikninga eru í boði veflausnir þar sem hægt er að handskrá reikninga og senda, yfirleitt án kostnaðar fyrir lítið magn reikninga.
Viðskiptalegar kröfur til reikninga
Allir reikningar skulu innihalda eftirfarandi upplýsingar:
- Kt. Garðabæjar 570169-6109. Engin önnur kennitala er gild.
- Lýsingu á vöru eða veittri þjónustu.
- Verð seljanda sem skal innihalda allan kostnað sem fellur til.
- Ekki er heimilt að setja á reikninga viðbótargjöld sem ekki hefur verið samið um og ekki tengjast seldri vöru eða þjónustu, s.s. seðil- eða þjónustugjöld.
- Gjaldfrestur skal vera í samræmi við gildandi samninga eða viðskiptaskilmála Garðabæjar.
Einnig skal koma fram á reikningum:
- Nafn og/eða númer þeirrar stofnunar/deildar sem pantar.
- Númer pöntunar eða beiðni (ef uppgefið af kaupanda). Verknúmer og verkliður (ef uppgefið af kaupanda).
- Númer samnings (sem verð og önnur kjör eru byggð á).
Garðabær áskilur sér rétt til að greiða ekki eða endursenda reikninga sem ekki uppfylla þessi skilyrði.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.