Ásgarður, nýr knattspyrnuvöllur- Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Garðabær - Ásgarður, nýr knattspyrnuvöllur. Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir.
Upplýsingar um auglýst útboð
Ásgarður, nýr knattspyrnuvöllur- Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir
Staða útboðs: Í auglýsingu
Útboð opnar: 06.05.2026
Útboð lýkur: 22.05.2026
Framkvæmdin felur í sér fullnaðarfrágang á nýjum knattspyrnuvelli í fullri stærð ásamt uppsteyptu tæknirými við syðri skammhlið hans og fullnaðarfrágangi á nýjum sparkvelli ofan við tæknirými að sunnanverðu. Einnig fullnaðarfrágang nýrra stofnlagna að vallarsvæði tengingu þeirra við núvarendi lagnir og fullnaðarfrágangi hitalagna undir vallaryfirborð nýja vallarins.
Jafnframt felast í verkinu rif tveggja vallarsvæða núverandi æfingavalla og rif á tveimur battavöllum, auk hluta stofnlagna að þessum lagnasvæðum, rif á steyptum stoðvegg á svæðinu og rifum á núverandi tæknirými.
Helstu magntölur eru:
- Upprif snjóbræðslulagna 30.680 m
- Upprif raflagna 500 m
- Upprif ljósamastra 18 stk
- Upprif fráveitulagna 130 m
- Upprif battavalla 2 stk
- Upprif stoðveggjar 100 m2
- Upprif núverandi tæknirýmis 1 stk
- Upprif malbiks og hellur 1.410 m2
- Losun klappar 370 m3
- Uppgröftur 15.300 m3
- Malarfylling 9.670 m3
- Jöfnunarlag, 8cm 8.820 m2
- Jöfnunarlag, 5cm 840 m2
- Malbik, 5cm 815 m2
- Þökulögn 3.000 m2
- Lagnir- Uppgröftur og fylling 1.200 m
- Veggjamót 220 m2
- Járnbending 4.900 kg
- Steinsteypa 58 m3
- Trévirki, klæðning og timburstólpar 1.145 m
- Fráveitulagnir 310 m
- Vatnslagnir 735 m
- Snjóbræðsla og stofnar 38.700 m
- Ídráttarrör 1.245 m
- Stálrimlagirðing 375 m
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með miðvikudeginum 6. maí 2026 kl. 14:00.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en föstudaginn 22. maí 2026, kl. 14:00.