Beint í efni

Hnoðra­holt suð­ur – Há­holt – Gatna­gerð og lagn­ir

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Hnoðraholt suður – Háholt – Gatnagerð og lagnir

Í auglýsingu
20.11.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Hnoðraholt suður – Háholt – Gatnagerð og lagnir

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
20.11.2026
Útboð lýkur
04.12.2026
Skiladagur verks
01.09.2027
Nálgast gögnSkoða umfjöllun í fundargerðum

Verkið felst í uppbyggingu gatna og veitna fyrir nýtt íbúðahverfi í Garðabæ. Heildarlengd gatna er um 1.500 m.

Verkinu skal lokið fyrir 1. september 2027.

Verkið nær til allrar jarðvinnu fyrir götur, gangstéttar, bílastæði, fráveitur og frárennsliskerfi. Einnig felur það í sér alla vinnu, bæði jarðvinnu og lagnir, við heitt og kalt vatn, fjarskipta- og rafmagnslagnir ásamt götulýsingu.

Helstu magntölur:

  • Gröftur 33 000 m3
  • Klapparskering 1 000 m3
  • Fylling og burðarlög 46 000 m3
  • Malbikun 8 600 m2
  • Fráveitulagnir 3 300 m
  • Hitaveitulagnir 3 000 m
  • Vatnslagnir 1 300 m
  • Strenglagnir – rafstrengir 3 600m
  • Háspennustrengur 200 m
  • Ljósastólpar 70 stk.
  • Ídráttarrör rafmagns 350 m
  • Fjölpípurör 3 100 m
  • Blástursrör 525 m
  • Gröftur fyrir lögnum 10 000 m3
  • Losun á klöpp í skurðum 4 500 m3

Útboðsgögn verða afhent rafrænt í útboðskerfinu: https://efla.ajoursystem.net/tender

Föstudagin 20.nóvember 2026 klukkan 14:00 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 2.desember 2026.

Hnoðraholt suður – Háholt – Gatnagerð og lagnir - Garðabær