Hraunhólar -Stígar, veitulagnir og frágangur
Garðabær, Veitur ohf., Ljósleiðarinn, Míla og HS Veitur óska eftir tilboðum í verkið: Hraunhólar -Stígar, veitulagnir og frágangur
Upplýsingar um auglýst útboð
Hraunhólar -Stígar, veitulagnir og frágangur
Athugið að þessu útboði er lokið
Verkið felst í nýbyggingu stíga og lagningu veitulagna veitufyrirtækja og Garðabæjar ásamt yfirborðsfrágangi.
Verktaki skal grafa fyrir stígum og lögnum, fylla undir og yfir lagnir og fylla í stíga og götur og útbúa bráðabirgða bílastæði. Verktaki skal annast alla vinnu, bæði jarðvinnu og lagnavinnu, vegna heitavatns-, vatns-, fjarskipta- og rafmagnslagna og ídráttarröra og reisa ljósastaura og tengiskápa. Að því loknu skal ganga frá yfirborði og koma því í sama horf og fyrir framkvæmdir.
Helstu magntölur eru:
Gröftur f. stíga og veitulagnir | 2200 m3 |
Klapparskering | 200 m3 |
Vatns- og fráveitulagnir Hitaveitulagnir | 350 m 220 m |
Raf- og fjarskiptalagnir | 990 m |
Steypt stétt Malbik Kantsteinar | 120 m2 1250 m2 80 m |
Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.