Beint í efni

Þrír vell­ir – end­ur­nýjun og nýtt gervi­gras

Garðabær óskar eftir tilboðum í endurnýjun gervigrass og fullnaðarfrágang á þremur völlum á svæði Stjörnunnar við Ásgarð þ.e. Samgsungvallar, Stekkjaflatavallar og nýs Flataskólavallar.

Útboð
30.01.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Þrír vellir – endurnýjun og nýtt gervigras

Staða útboðs: Í vinnslu

Útboð opnar: 30.01.2026

Útboð lýkur: 18.12.2025

Skiladagur verks: 15.05.2026

Útboðsvefur

Garðabær óskar eftir tilboðum í endurnýjun gervigrass og fullnaðarfrágang á þremur völlum á svæði Stjörnunnar við Ásgarð þ.e. Samgsungvallar, Stekkjaflatavallar og nýs Flataskólavallar.

Verkið felst í rifi og förgun hjá viðurkenndum förgunaraðila á núverandi gervigrasi á Samsung- og Stekkjaflatavelli ásamt útvegun gervigrass og niðurlögn á völlunum þremur með tilheyrandi frágangi.

Helstu þættir verksins eru:

  • Upprif, flutningur og förgun á núverandi yfirborði alls um 15.298 m2
  • Samsungvöllur 76x113 m
  • Stekkjaflatavöllur 61x110 m
  • Nýtt gervigrasyfirborð alls um 24.114 m2
  • Samsungvöllur 76x113 m
  • Stekkjaflatavöllur 61x110 m
  • Flataskólavöllur 76x116 m

Skiladagar verksins eru eftirfarandi:
Samsungvöllur: 15 maí 2026
Aðrir vellir skv. nánara samkomulagi.

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni vso.ajoursystem.net/ frá og með fimmtudeginum 4. desember 2025.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en fimmtudaginn 18. desember 2025 kl. 14.00.

Þrír vellir – endurnýjun og nýtt gervigras - Garðabær