Yfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ 2026
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Yfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ 2026
Upplýsingar um auglýst útboð
Yfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ 2026
Staða útboðs: Í auglýsingu
Útboð opnar: 19.05.2026
Útboð lýkur: 29.05.2026
Skiladagur verks: 21.08.2026
Um er að ræða yfirborðsmerkingar á götum Garðabæjar til næstu þriggja ára, með möguleika á framlengingu um eitt ár. Yfirborðsmerkingar verða endurnýjaðar þar sem þeim er ábótavant vegna aldurs og/eða ágangs umferðar og veðurs. Merktar verða akbrautarlínur, hindrunarlínur, biðskyldu- og stöðvunarlínur, gangbrautir, örvar og hraðamerkingar.
Helstu magntölur eru:
- Sprautumössun: 47.300 m
- Vegmössun línur: 1250 m2 (gangbrautir og stöðvunarlína)
- Vegmössun merkingar: 1700 stk (þríhyrningar, ferningar og örvar)
- Fræsun : 70 m2
Verklok fyrir framkvæmdir ársins 2026 eru áætluð 21. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn. Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 19. maí 2026.
Tilboð verða opnuð rafrænt 29. maí 2026.