15.000 sumarblóm munu prýða bæinn

Garðyrkjudeild Garðabæjar gróðursetur um 15.000 sumarblóm í ár og þar af fara tæplega 4.500 sumarblóm á Garðatorgið. Sumarblómin eru ýmist sett í ker, beð, potta eða blómakörfur.
Garðyrkjudeildin fær blómin í hús í lok maí er fyrsta verkefni að útbúa blómakörfurnar sem hanga á staurum á Garðatorgi. Blómakörfurnar eru 66 talsins og í þær fara samtals 1.600 blóm.
„Þegar blómakörfurnar eru tilbúnar er lögð áhersla á að klára allar aðrar gróðursetningar á Garðatorgi. Sumarblómunum er síðan plantað í öll steyptu kerin sem sjást víða um bæinn og loks í fyrir fram ákveðin gróðurbeð,“ segir Jóhanna Kristín Johannsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Garðabæ.
Fjölbreytt verkefni bíða garðyrkjudeildarinnar. „Þegar sumarstarfsfólkið fer að tínast inn í byrjun sumars fer garðyrkjudeildin á fullt því okkar bíða fjölmörg verkefni. Það þarf að dreifa áburði á allar leikskólalóðir, manir, trjábeð og opin svæði. Einnig undirbúa matjurtagarða og skólagarða bæjarins fyrir starfsemi sumarsins og undirbúa öll sumarblómabeðin, stinga þau upp og arfahreinsa. Yfir sumarið eru helstu verkefni sumarstarfsfólksins að halda gróðurbeðum hreinum, undirbúa og gróðursetja sumarblóm, útbúa blómakörfur, götuker og gróðurbeð, sanda beð, kantskera, þökuleggja og halda bænum snyrtilegum,“ bætir Jóhanna við.
