17. júní í Garðabæ

Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Garðatorgi á 17. júní. Svona lítur dagskráin út.
13.00
Skrúðganga frá Hofsstaðaskóla. Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar og Skátafélagið Vífill leiða göngu frá túninu við Hofsstaðaskóla á Garðatorg.
13.30-15:45
Blásarasveit leikur og fjallkona les ljóð. Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar ávarpa hátíðargesti.
- Dagskrá fyrir yngstu gestina sem Gunni og Felix kynna.
- Húbba Búbba, Skoppa og Skrítla, Sólon og Dimma dúskur
- Leikfélagið Fuglabjarg og Sigga Ózk.
13.30-16.00
Hoppukastalar og kandífloss. Bílastæði Garðatorgs er svæði fyrir fjör! Skátafélagið Vífill hefur umsjón með hoppukastölum, poppi og kandíflossi.
13.30-16.00
Kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar í Sveinatungu. Marengstertur, heitir réttir, randalínur og pönnsur að hætti kvenfélagskvenna.
14.00-16.00
Fánasmiðja, andlitsmálun og Rögguvísur og á Garðatorgi 7. Föndursmiðja við bókasafnið. Andlitsmálun á rampinum og Ragga Hólm með Rögguvísur, litabækur, liti og gleði.

13.30-16.00
Krakka-karaókí á bókasafninu. Syngjum uppáhalds lögin okkar í Svítu bókasafnsins.
10.00 – 14.00
Sund á Álftanesi. Buslið eða slakið á í Álftaneslaug.
12.00-17.00
- Hönnunarsafn Íslands. Velkomin á safnið að skoða sýningar og njóta þess að dunda í Smiðjunni.
- Minjagarðurinn á Hofsstöðum og Aftur til Hofsstaða. Skyggnist inn í fortíðina í Minjagarðinum við Kirkjulund og á margmiðlunarsýningunni á Garðatorgi 7.
20.00-21.00 í Tónlistarskóla Garðabæjar
Salonhljómsveitin L‘amour fou í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Gömul íslensk dægurlög og góð stemning á ókeypis tónleikum þar sem fram koma:
Hrafnhildur Atladóttir fiðluleikari, Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari, Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari, Gunnlaugur Torfi Stefánsson kontrabassaleikari og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari.