Beint í efni

326 börn sungu lög Dr. Gunna á Garða­torgi

Fréttir
12.05.2026

Garðatorg iðaði af lífi þegar hópur fimm ára barna af leikskólum og leikskóladeildum í Garðabæ söng á frábærum tónleikum þar sem lög Dr. Gunna voru í aðalhlutverki.

Söngvavor, þátttökuverkefni leikskólanna í Garðabæ og Tónlistarskóla Garðabæjar, lauk með skemmtilegum tónleikum á Garðatorgi 7. Þá komu 326 börn saman og sungu lög eftir Dr. Gunna ásamt 40 manna hljómsveit skipaðri nemendum úr Tónlistarskóla Garðabæjar.

Verkefnastjóri verkefnisins var Linda Margrét Sigfúsdóttir, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar. Hljómsveitarstjóri var Hannah O'Connor og um kórstjórn sá Ólafur Schram.

Leikskólarnir og leikskóladeildirnar sem tóku þátt æfðu frá því í janúar. Fyrr í maí var haldin æfing í Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem kom í ljós hve frábært starf kennarar skólanna hafa unnið með börnunum. Hópurinn stóð sig með mikilli prýði og voru fjölmargir sem lögðu leið sína á tónleikana eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.