Beint í efni

Af­hentu Alz­heim­er­sam­tök­un­um 3.205.201 króna styrk

Fréttir
02.07.2026

Alls söfnuðust 3.205.201 krónur á Jazzþorpinu í Garðabæ sem fram fór helgina 30. apríl – 3. maí. Það eru Alzheimersamtökin sem njóta góðs af sölunni og fá til sín óskerta sölu á húsgögnum og gripum frá Góða hirðinum en einnig lögðu Húsgagnahöllin, Tekk og Ikea verkefninu lið.

Jazzþorpið í Garðabæ er árleg hátíð sem fer fram á Garðatorgi og Garðabær stendur fyrir. Í Jazzþorpinu var boðið upp á 25 viðburði; tónleika, spjall og smiðju fyrir börn. Þá var boðið upp á veitingar, Ásgarður handverkstæði seldi vörur sínar og matarmarkaður kryddaði enn frekar tilveruna í þorpinu. Marglitar kúlur og kósístofur gera Jazzþorpið að sannkölluðum ævintýraheimi sem ætlaður er allri fjölskyldunni og aldrei hafa jafn margir dvalið í þorpinu líkt og í ár.

Ómar Guðjónsson listrænn stjórnandi Jazzþorpsins, Ruth Einarsdóttir rekstrarstjóri Góða hirðisins og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar afhentu Alzheimersamtökunum styrkinn en það var Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna sem veitti honum viðtöku. Á myndinni með þeim má sjá Ólöfu Breiðfjörð menningarfulltrúa Garðabæjar og Láru Rut Þorsteinsdóttur markaðsfulltrúa Góða hirðisins.

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk - Garðabær