Beint í efni

Áfram­hald­andi sam­starf Garða­bæj­ar og Stjörn­unnar stað­fest

Fréttir
20.04.2026

Endurnýjaður samstarfssamningur Garðabæjar og Stjörnunnar var undirritaður við skemmtilegt tilefni í Hekluhöllinni, skömmu fyrir leik karlaliðs Stjörnunnar í handbolta í umspili fyrir sæti í Olís deildinni á næsta tímabili.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Sigurður Guðmundsson, formaður Stjörnunnar undirrituðu samninginn. „Það var svo sannarlega líf og fjör í Hekluhöllinni þegar við Sigurður staðfestum endurnýjaðan samstarfssamning og þar með áframhaldandi samvinnu sem hefur reynst afar farsæl í gegnum árin. Svo tryggði Stjarnan sér áframhald í Olísdeildinni, sem var auðvitað mjög ánægjulegt og setti punktinn yfir i-ið,“ segir Almar.

Í samstarfssamningnum er kveðið á um gagnkvæmar skyldur samningsaðila um útfærslu á íþróttastarfi í Garðabæ.

Í samningnum segir að Stjarnan hafi það að markmiði í starfsemi sinni að bjóða börnum og unglingum af öllum kynjum skipulagt íþróttastarf undir leiðsögn vel menntaðra og hæfra leiðbeinenda þar sem lýðheilsa og forvarnargildi íþrótta er höfð að leiðarljósi. Jafnframt skal félagið hlúa að keppnis- og afreksíþróttafólki þannig að það geti náð sem bestum árangri.

Garðabær styður þá við fjárhagslegan rekstrar- og starfsgrundvöll félagsins með samkomulagi um afnot á íþróttamannvirkjum og beinum fjárframlögum sem renna meðal annars til íþróttaskóla Stjörnunnar, til almenns rekstrar félagsins og til afreksstarfsemi þess. Einnig veitir Garðabær Stjörnunni sérstakt framlag sem m.a. er ætlað að styðja við forvarnarstarf félagsins. Samningurinn gildir til loka árs 2028.

„Samningurinn er staðfesting á því trausti og sameiginlegu sýn sem við höfum byggt upp í gegnum árin. Stjarnan er hjartað í svo mörgu í samfélaginu okkar, sérstaklega í lífi barna og ungmenna og það skiptir okkur miklu máli að við getum haldið áfram að bæta aðstöðuna, fjölga tækifærum og styðja við hvert einasta barn sem vill taka þátt,“ segir Sigurður.

Á myndinni má sjá Almar og Sigurð ásamt Baldvini Sturlusyni, framkvæmdastjóra Stjörnunnar og Björgu Fenger, formanni bæjarráðs Garðabæjar. Ljósmyndir tók Sævar Jónasson.