Beint í efni

Áhuga­verð er­indi og um­ræð­ur á vinnu­stof­unni Vel­ferð og vá

Fréttir
26.06.2026

Velferð og vá var yfirskrift fundar og vinnustofu sem var haldinn í Garðabæ í byrjun júní og fundarefnið var hlutdeild félagsþjónustu sveitarfélaga í skipulagi almannavarna.

Til fundarins mættu stjórnendur hjá velferðarsviðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, fulltrúar almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, fulltrúar lögreglu og fulltrúar frá Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

Fundurinn sem var haldinn í fundarsal bæjarins í Sveinatungu á Garðatorgi var sá síðasti í röð funda sem hafa verið haldnir í öllum landshlutum í samvinnu Sambands íslenskra sveitarfélaga og HÍ. Fundaröðin var hluti af verkefni sem nefnist Velferð og vá sem er leitt af Guðnýju Björk Eydal prófessor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

Áhugaverð erindi og umræður

Á fundinum í Garðabæ voru flutt áhugaverð og fjölbreytt erindi frá fulltrúum HÍ, fulltrúum velferðarsviða sveitarfélaga og frá fulltrúum aðgerðastjórna almannavarna á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn var í senn vinnustofa og þar var líka haldin skrifborðsæfing um samspil almannavarna og félagsþjónustu og umræður þar sem varpað var fram spurningum um hvaða lærdóm mætti draga af reynslunni á höfuðborgarsvæðinu af aðkomu félagsþjónustunnar að viðbrögðum við vá, hvað hefði gengið vel og hvað mætti bæta og hvernig mætti nýta það til að efla aðgerðaráætlanir og samstarf.

Fram kom á fundinum að mikil reynsla hefur orðið til á undanförnum árum hjá velferðarsviðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sérstaklega á tímum Covid hvað varðar samstarf og viðbrögð við vá.

Um verkefnið Velferð og Vá

Velferð og vá er verkefni sem felst í rannsókn á hlutdeild félagsþjónustu sveitarfélaga í skipulagi almannavarna. Verkefnið er afsprengi norræna rannsókna sem gerðar voru af Nordic Welfare Center (NVC) árið 2016 þar sem kom í ljós að mikilvægt væri að leggja áherslu á félagslega innviði og viðbúnað félagsþjónustu þegar kemur að áföllum.

Lokahnykkur í verkefninu var fundaröðin með fulltrúum sveitarfélaga og almannavarna sem var haldin um allt land þar sem rannsóknin var kynnt auk erinda og samtals sem átti sér stað á fundunum og vinnustofunum. Í kjölfarið verður unnin skýrsla um niðurstöður fundanna sem liggur væntanlega fyrir í haust og nýtist það til áframhaldandi vinnu hjá velferðarsviðum sveitarfélaga og almannavörnum um allt land.