Beint í efni

Al­þjóð­legi drullu­dag­ur­inn hald­inn há­tíð­leg­ur í Ur­riða­holts­skóla

Fréttir
01.07.2026

Alþjóðlegi drulludagurinn (International Mud Day) er haldinn 29. júní ár hvert og nemendur í Urriðaholtsskóla fagna ávallt deginum.

Á hverju ári ríkir mikil tilhlökkun fyrir þessum skemmtilega degi í Urriðaholtsskóla.

Starfsfólk á leikskólastigi hafði undirbúið daginn af kostgæfni og sett upp fjölbreyttar stöðvar á útisvæði skólans þar sem börnin gátu leikið sér, rannsakað og skapað í drullunni. Í hinu vinsæla drullueldhúsi voru útbúnar sannkallaðar eðaldrullukræsingar og um alla lóð voru börn í skapandi leik og samvinnu. Rigningaveðrið setti punktinn yfir i-ið.

Listsköpun setti einnig svip sinn á daginn þar sem börnin nýttu drulluna á fjölbreyttan hátt til að skapa einstök og skemmtileg listaverk. Gleðin, forvitnin og leikurinn voru allsráðandi og minnti dagurinn á mikilvægi útiveru, sköpunar og óhefts leiks í námi barna.

Meðfylgjandi eru myndir frá Urriðaholtsskóla sem voru teknar á þessum skemmtilega degi.