Beint í efni

App­el­sínu­gul veð­ur­við­vörun 26. mars

Fréttir
25.03.2026

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá 07:00 til 13:00 fimmtudaginn 26. mars 2026.

Við hvetjum foreldra grunnskólabarna til að fylgjast sérstaklega vel með fréttum af veðri á morgun, 26. mars.

Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun vegna appelsínugulrar veðurviðvörunnar. Það á einnig við um tónlistarskólann.  Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.  

Hér má sjá gagnlegar upplýsingar: Röskun á skólastarfi | Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Húsnæði íþróttamiðstöðva Garðabæjar verða opin en búast má við skertri starfsemi á meðan veður gengur yfir.

Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fréttum og vef Veðurstofunnar.

English:

An Orange Weather Warning will be in effect tomorrow from 07:00 AM to 01:00 PM. 

Preschool and elementary school activities will be disrupted tomorrow due to the weather. Preschools and elementary schools will be open, but normal operations will not take place while the orange alert is in effect. Normal preschool, elementary school, and after-school activities will resume after the alert ends. 

Useful information can be found here: Röskun á skólastarfi | Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

The facilities of Garðabær's sports centers will be open, but reduced operations can be expected while the storm passes.

We kindly ask you to closely monitor the news tomorrow morning in case there are any changes to the situation.