Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar hefst á mánudaginn.
Í árlega hreinsunarátakinu, sem er frá 20. apríl til 4. maí, eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar.
Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra umhverfismála Garðabæjar sem úthlutar svæðum til að hreinsa og veitir frekari upplýsingar: lindajo@gardabaer.is.
Praktísk atriði:
· Þátttakendur eru beðnir um að tína rusl á úthlutuðu svæði
· Hægt er að sækja ruslapoka í Þjónustumiðstöð Garðabæjar, Lyngási 18.
· Þjónustumiðstöðin lánar einnig ruslatínur fyrir þau sem þurfa, eins og unnt er.
· Þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega í sér poka.
· Pokum skal svo komið þannig fyrir að þeir fjúki ekki og séu á sýnilegum stað til að auðvelda móttöku.
· Að lokinni hreinsun skal senda staðfestingu og staðsetningu poka á lindajo@gardabaer.is, starfsmenn bæjarins munu sækja pokana.