Ásgarðslaug lokuð vegna viðhalds 27. -31. júlí
Tilkynningar
23.07.2026

Sundlaugin í Ásgarði verður lokuð dagana 27.-31. júlí vegna árlegs viðhalds.
Ásgarðslaug verður lokuð frá og með mánudeginum 27. júlí til föstudagsins 31. júlí nk. vegna viðhaldsverkefna. Auk sundlaugarinnar verða sundklefar lokaðir. Hægt verður að nýta ræktaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni Ásgarði með aðgengi að búningsklefum á klefagangi.
Íbúar og aðrir sem vilja komast í sund er bent á að fara í Álftaneslaug þessa daga en hún er opin eins og venjulega. Sjá nánar hér um Álftaneslaug.