Aukið umferðaröryggi í Garðabæ

Garðabær vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið hennar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.
Mikilvægur þáttur í vinnunni er að kortleggja hættur í umferðinni. Sú kortlagning byggir ekki aðeins á staðsetningu slysa heldur einnig á upplifun íbúa af varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.
Til þess að tryggja að raddir íbúa heyrist hefur sveitarfélagið ákveðið að efna til stafræns íbúasamráðs, þar sem íbúum gefst tækifæri til að koma á framfæri sínum ábendingum. Við leitum eftir upplýsingum frá ykkur um þá hættustaði sem þið upplifið í umferðinni, ásamt því að staðsetja þá á korti.
Athugið að það er hægt að setja fleiri en eina staðsetningu en það þarf að smella á „ljúka könnun“ fyrir hverja staðsetningu.
Ábendingagáttin verður opin til 25. september nk. í gegnum eftirfarandi hlekk https://arcg.is/0jG45G
Láttu í þér heyra – þú þekkir þitt nærumhverfi best!