Bókasafn Garðabæjar í vexti

Starfsemi Bókasafns Garðabæjar árið 2025 einkenndist af miklum vexti, fjölbreyttu viðburðahaldi og aukinni aðsókn. Heildargestafjöldi árið 2025 var 115.910 gestir, sem er 18% aukning frá 2024.
Bókasafnið náði mikilvægum árangri um að fjölga gestum, viðburðum og efla barnastarf. Bókasafnið er staðsett á Garðatorgi 7 með útibú á Álftanesi.
Lykiltölur ársins 2025
- Gestafjöldi: 115.910 (+18%) (þar af 113.519 aðalsafnsgestir skv. gestateljara)
- Útlán: 78.330 (+7,9%)
- Viðburðir: 295 (+37%)
- Gestir á viðburðum: 6.137 (+27%)
- Nemendaheimsóknir: 2.721 (+6%)
- Safnkostur: 43.600 eintök
Tölurnar endurspegla bæði aukna notkun og markvissa þjónustuþróun.
Helstu áherslur og árangur
Aukin aðsókn og fjölskylduvænt rými: Undan farin ár hefur aðsókn í fjölskylduvæn rými aukist og var barnadeild og fjölskyldurými aðalsafns mjög vel sótt. Safnið brást við með fjölgun smiðja og fjölskylduviðburða yfir sumarið og vetrartímann.

Metár í viðburðum: Opnir viðburðir voru 295 talsins, þar á meðal var Safnanótt, Harry Potter-dagur þar sem um 1.000 gestir mættu, jólabókaspjall og fjölmargar smiðjur fyrir bæði börn og fullorðna. Þá má einnig nefna prjónaviðburði sem hafa vakið lukku, foreldramorgna og leshringi.

Öflugt barnastarf: Um 200 börn skráðu síg í sumarlestur og skiluðu 806 umsagnarmiðum sem er metfjöldi. 2.721 nemandi heimsótti aðalsafn í skipulagðar heimsóknir og þar má nefna námskeið fyrir 1. og 2.bekk í sumarlestri, 4.bekkur í smiðju í tengslum við Norrænu bókmenntavikuna, ritsmiðja fyrir 5.bekk og ljóðaslamm fyrir 9.bekk. Einnig koma leikskóla- og grunnskólanemendur í opnar móttökur þar sem meira er verið að lesa og velja bækur. Opnir viðburðir má helst nefna föndursmiðjur, fjölskyldusmiðjur, sumarsmiðjur, ljósaborð og segulkubbar, og sögur og söngur.

Álftanessafn: 2.391 gestur heimsótti útibúið á árinu sem er aukning frá 2024. Mikilvægt er að bjóða fjölskyldum upp á viðburði og smiðjur í úthverfum. Alla fimmtudaga hefur verið eitthvað skemmtilegt á boðstólnum fyrir yngri börnin. Einstaka laugardaga yfir vetrartímann er svo boðið upp á veglegri fjölskylduviðburði/smiðjur.
2025 gæfuríkt ár
Árið 2025 var gæfuríkt ár. Bókasafnið styrkti stöðu sína sem lifandi menningar- og samfélagsmiðstöð, með metaðsókn, fjölbreyttu viðburðahaldi og öflugu barnastarfi.
