Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna

Púlsinn er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu.
Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa. Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi.
Teymið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Það er hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Um Púlsinn
Í Púlsinum starfar hópur reyndra sérfræðinga sem hefur umfangsmikla reynslu af því að vinna með ungmennum í vanda. Hópnum er ætlað að bregðast við og taka á ofbeldismálum, skýra og auðvelda boðleiðir og tryggja skilvirka samvinnu allra þjónustuveitenda og -kerfa.
Með því að koma fyrr að slíkum málum og veita börnum sem beita ofbeldi viðeigandi stuðning fljótt og markvisst eru vonir bundnar við að draga úr líkum á að slík brot endurtaki sig og fækka ofbeldismálum meðal barna.