Dagskrá afmælishátíðar Garðabæjar 29. ágúst

Afmælishátíð Garðabæjar verður haldin laugardaginn 29. ágúst á Garðatorgi. Það verður líf og fjör á torginu frá klukkan 13:00 en formleg setning hátíðarinnar er klukkan 14:00.
Boðið verður upp á afmælisköku, andlitsmálningu, hoppukastalafjör og blöðrur ásamt glæsilegri tónlistardagskrá í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar. Matarvagnar verða á svæðinu og aðrar skemmtilegar uppákomur.
13:00 Svæðið opnar
13:15 Sirkusatriði á torginu
14:00 Setning afmælishátíðar Garðabæjar
15:00 Leikhópurinn Lotta
17:30 Agla Bríet og Einar Örn frumflytja afmælislag Garðabæjar
Fram koma á stóra sviði
Kusk og Óviti
Alaska
Saint Pete
Einar Örn Magnússon og félagar
Aníta Rós og Kristinn Þór
Barrio 27
Jói Pjé og Króli
Hipsumhaps
Dikta

Hönnunarsafn Íslands
16:00 Opnun á sýningunni Saumó
Bókasafn Garðabæjar
Ljóðaskápur Vigdísar: Sýning á ljóðabókum sem prýtt hafa hillurnar í Ljóðaskáp Vigdísar á Bessastöðum í gegnum árin
Verið velkomin á afmælishátíð Garðabæjar á Garðatorgi, 29. ágúst.
Hér finnur þú viðburðinn á Facebook
Uppfært: Áður stóð til að nýta bílakjallara Garðatorgs undir tónleikahald en sú dagskrá hefur verið færð upp á stóra sviðið.