Beint í efni

Ut­an­vegs­hlaupið Elds­lóð­in á laug­ar­dag­inn

Fréttir
12.09.2025

Utanvegshlaupið Eldslóðin fer fram á morgun, 13. september. Upphaf hlaupsins er við Vífilsstaði og er komið í mark á sama stað.

Utanvegshlaupið Eldslóðin er haldið í Garðabæ á morgun, laugardaginn 13. september. Upphaf hlaupsins er við Vífilsstaði og er einnig komið í mark á sama stað.

Hægt er að hlaupa 5 km, 10 km eða 29 km. Lengri brautin er frá Vífilsstöðum að Vífilsstaðavatni, inn að Búrfellsgjá, þar upp að Helgafelli og aftur til baka að Vífilsstöðum.

Á vef Eldslóðarinnar má sjá hvenær ræsing hlaupara er og kortaf þeim leiðum sem þátttakendur fara.

Skjamynd-2025-09-12-113608

 Hér má sjá 10km hlaupaleiðina.