Beint í efni

End­ur­bæt­ur á leik­velli við Furu­ás

Fréttir
22.07.2026
Endurbætur á leikvelli við Furuás

Í sumar hófust framkvæmdir við endurbætur á leikvelli við enda götunnar Furuáss í Ásahverfi. Leikvöllurinn hefur verið endurhannaður með yngri börn í huga.

Leiktækjaval og yfirborðsefni er ætlað að tryggja gott flæði í gegnum leiksvæðið og þar verður einnig sett upp bekkur og borð. Hringlaga form leiksvæðisins verður látið halda sér og það sama á við um núverandi grjóthleðslu og runnabeð ofan við hleðsluna. Hleðslan rammar svæðið vel inn og virkar sem hindrun fyrir minni börn og runnarnir mynda skjól. Að öðru leyti er skipt um leiktæki, undirlag, önnur yfirborðsefni og gróður.

Áætlað er að framkvæmdunum við leiksvæðið ljúki í lok sumars. Á meðan framkvæmdirnar standa yfir er leiksvæðið alveg lokað og búið er að girða leiksvæðið af. Göngustígurinn norðan við leiksvæðið er opinn og aðgengi frá Furuás er einnig opið. Jafnframt er hægt að vera á grasfletinum sunnan við leikvöllinn.

Hér má sjá nánari lýsingu og skýringarmynd á endurbótunum á leikvellinum við Furuás:

Endurbætur - leikvöllur - Furuás