Beint í efni

End­ur­bæt­ur á stíg­um með­fram Hafn­ar­fjarð­ar­vegi halda áfram

Fréttir
03.06.2026

Framkvæmdir á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram. Nú er komið að kaflanum frá Laufási yfir að Álftanesvegi.

Framkvæmdaverkefnið er á vegum Betri samgangna og felur í sér að núverandi stígar meðfram Hafnarfjarðvegi verða endurnýjaðir að hluta og nýr stígur lagður samhliða þar sem aðskildar leiðir verða fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Samtímis verða sett upp ný skilti og lýsing verður endurnýjuð við stígana. Framkvæmdin mun þannig stuðla að auknu öryggi þeirra sem nota stígana.

Á meðan á lokun stendur vegna framkvæmda verður hjólandi og gangandi umferð beint um hjáleið við framkvæmdasvæðið. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki í desember 2026.

Stígaframkvæmdir við Arnarnesbrú standa einnig yfir, áætluð verklok á þeim kafla eru í lok sumars.

Sjá einnig: Nýir og betrumbættir stígar meðfram Hafnarfjarðarvegi - Garðabær

Endurbætur á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram - Garðabær