Er bjarnarkló í garðinum þínum?

Garðyrkjudeild Garðabæjar hefur unnið að því að skrásetja og fjarlægja bjarnarkló sem finnst á opnum svæðum og öðrum stöðum innan sveitarfélagsins.
Bjarnarkló er stórvaxin planta af sveipjurtaætt og hefur verið nokkuð vinsæl sem skrautjurt í einkagörðum. Varast ber að rækta þessa tegund, þar sem hún þroskar auðveldlega mikið af fræjum og dreifir sér af sjálfsdáðum.
Bjarnarkló er eitruð planta, safinn í stönglinum og blöðunum virkjast í sólarljósi og getur valdið alvarlegum bruna á húð og valdið blindu ef hann berst í augu.
Til þess að draga úr útbreiðslu hefur garðyrkjudeild Garðabæjar unnið að því undanfarin ár að skrásetja og fjarlægja þær plöntur sem finnast á opnum svæðum og öðrum stöðum innan sveitarfélagsins. Varðandi frekari upplýsingar um bjarnarkló eða tilkynna um vaxtarstaði er bæjarbúum bent á að hafa samband við garðyrkjustjóra á netfangið smarig@gardabaer.is og/eða á garðyrkjufræðing bæjarins, johannajoh@gardabaer.is.