Félagshesthús rísi hjá Spretti

Garðabær, Kópavogur og Sprettur hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og Halldór Victorsson, formaður Spretts, hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu. Félagshesthúsið mun rúma 40 hesta og þar verður aðstaða fyrir fatlaða einstaklinga að sækja sér reiðkennslu. Aukinheldur er hugmynd um að grunnskólanemendum í sveitarfélögunum verði gert kleift að sækja reiðkennslu sem hluta af vali í grunnskóla á skólatíma.
„Sprettur hefur þá sýn að gera hestamennsku og samveru við hesta aðgengilegri fyrir breiðari hóp í samfélaginu en þekkist í dag með áherslu á heilsueflingu, félagslegan stuðning og menntun,“ segir í viljayfirlýsingunni og þar kemur einnig fram að mikilvægt sé að styðja við markmið sveitarfélaganna tveggja um lýðheilsu, vellíðan og sjálfbærni.
„Með uppbyggingu kennslu- og félagshesthúss verði til vettvangur sem m.a. getur boðið upp á þjónustu fyrir breiðari hóp með áherslu á félagslegan stuðning og sjúkraþjálfun með aðstoð hesta. Þetta er í takt við alþjóðlega þróun í hestatengdri heilsueflingu og styður við nýliðun í hestamennsku, aukna þátttöku og aðgengi allra að öruggri og faglegri aðstöðu,“ stendur einnig þar.
Áætluð stærð félagshesthúss er 450 fermetrar og áætlaður kostnaður er 170 milljónir króna.
Með viljayfirlýsingunni lýsa Garðabær og Kópavogur því yfir að sveitarfélögin hafi vilja til að leggja hestamannafélaginu til styrk að fjárhæð 55 milljónir króna hvort í verkefnið, samtals 110 milljónir króna. Gerður verður sérstakur samningur um framkvæmdina og verður settur á laggirnar starfshópur.