Fjölbreytt verkefni hjá umhverfishópum

Það er alltaf jafn gaman í lok sumars að fá innsýn í það sem þeir ungu Garðbæingar sem starfa í umhverfishópum bæjarins yfir sumartímann hafa fengist við.
Starfsfólk umhverfishópanna vinna mikilvæg verkefni og tryggja fallega ásýnd bæjarins yfir sumartímann. Verkefnin í sumar voru fjölbreytt eins og ávallt og starfsfólkið öflugt.
„Sumarið hjá umhverfishópunum hefur gengið afskaplega vel og við vorum einstaklega heppin með mannskap í sumar. Ungmenni og flokkstjórar hafa lagt sig fram um að fegra bæinn og halda honum snyrtilegum allt sumarið,“ segir Vignir Snær Norðdahl, yfirflokkstjóri umhverfishópa.
Sumarið var fremur vætusamt en hóparnir létu rigninguna ekki stoppa sig. „Þökulagnir voru umfangsmiklar og við lögðum einnig fjölda nýrra stíga með trjákurli, meðal annars í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Garðabæjar. Einnig sinntum við umhirðu gróðurbeða og ýmsum öðrum verkefnum víða um bæinn,“ tekur Vignir sem dæmi. Þegar veður leyfði voru málningarpenslarnir einnig mundaðir.
Meðfylgjandi eru nokkrar fyrir og eftir myndir sem gefa innsýn í verkefnin sem unnin voru af sumarstarfsmönnum í umhverfishópum í sumar.










