Fjölmargir meistarar í Garðabæ
Fréttir
09.02.2023
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Íþróttaárið 2022 var afar blómlegt í Garðabæ og eignaðist bærinn marga meistara í ýmsum íþróttagreinum.
Íþróttaárið 2022 var afar blómlegt í Garðabæ og eignaðist bærinn marga meistara í ýmsum íþróttagreinum.
Ár hvert eru teknar saman upplýsingar um þá einstaklinga í Garðabæ sem hlutu Íslands-, bikar- eða deildarmeistaratitla eða settu Íslandsmet. Í þetta sinn voru það alls 362 einstaklingar sem náðu slíkum framúrskarandi árangri innanlands.
Hér má nálgast lista yfir þá einstaklinga sem urðu bikar- Íslands eða deildarmeistarar.
Hér að neðan má svo sjá myndband um þá einstaklinga sem spilað var á íþróttahátíð Garðabæjar.