Beint í efni

Fræ­sun slit­lags á Víf­ils­staða­vegi

Tilkynningar
09.07.2026
Vífilsstaðavegur - malbikun 100726

Föstudaginn 10. júlí verður unnið að fræsun slitlags á Vífilsstaðavegi, milli Hafnarfjarðarvegar og Unnargrundar frá kl. 09-14. Hjáleið verður um Lyngás.

Föstudaginn 10. júlí mun Loftorka vinna að fræsun slitlags á Vífilsstaðavegi, milli Hafnarfjarðarvegar og Unnargrundar. Framkvæmdir hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 14:00. Á meðan á framkvæmdum stendur verður götukaflinn lokaður allri umferð (merkt með rauðu á mynd).

Hjáleið verður um Lyngás, eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd með frétt.

Það verður fært fyrir gangandi og hjólandi umferð meðfram Vífilsstaðavegi en gangandi vegfarendur þurfa að sýna aðgát við þverun yfir götuna þar sem stór vinnutæki verða á götunni sjálfri.
Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega og fylgja vegamerkingum.