Framkvæmdir á Hafnarfjarðarvegi í júlí og ágúst

Í sumar verður unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg við Súlunes vegna nýs hverfis sem er að fara í uppbyggingu í Arnarlandi.
Framkvæmdin verður unnin í áföngum og umferð verður haldið opinni allan tímann um Hafnarfjarðarveg.
Framkvæmdartími er áætlaður frá 14. júlí til 18. ágúst 2026.
Hjáleiðir og lækkaður umferðarhraði
Á meðan á framkvæmdinni stendur verða hjáleiðir byggðar upp tímabundið og þegar unnið verður við einstakar akreinar verður viðkomandi akrein lokað á meðan og umferð þá leidd um hjáleið. Allar hjáleiðir verða vel merktar hverju sinni og umferðarhraði verður lækkaður til að gæta fyllsta öryggis á meðan.
Meðfylgjandi mynd með frétt sýnir hjáleiðir fyrst um sinn þegar verkið hefst í 1. áfanga þess.
Vegfarendur eru beðnir um að fylgja öllum vegamerkingum og gæta varkárni á framkvæmdasvæðinu.
Hjáleiðir í 1. áfanga - smellið á myndina hér fyrir neðan til að stækka hana.
