Framkvæmdir hafnar við Arnarland
Tilkynningar
25.08.2026

Vegfarendur sýni aðgát.
Framkvæmdir við gatnagerð í Arnarlandi eru hafnar. Undanfarið hefur verið unnið að gerð vinnuvegar innan framkvæmdasvæðisins en nú hefst umfangsmeiri vinna með tilheyrandi umferð vinnuvéla og vörubíla.
Aðkoma að vinnusvæðinu er við gatnamót Fífuhvammsvegar og Arnarsmára. Vegfarendur eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát á svæðinu, virða merkingar og vera viðbúnir aukinni umferð stórra ökutækja á meðan framkvæmdir standa yfir.
Garðabær biðlar jafnframt til ökumanna að aka varlega og sýna starfsfólki á framkvæmdasvæðinu tillitssemi og fylgja tilmælum. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda.