Beint í efni

Fram­kvæmd­ir við Ás­garð

Fréttir
25.06.2026

Framkvæmdir vegna nýs knattspyrnuvallar við Ásgarð eru að hefjast.

Lokanir vegna vinnunnar eru settar upp í dag, 25. júní, og áætlað er að þær verði uppi fram til loka ágústs. Göngustígur meðfram suðurhlíð Ásgarðs er lokaður á meðan á vinnunni stendur.

Framkvæmdin felur m.a. í sér gerð nýs knattspyrnuvallar í fullri stærð ásamt nýjum sparkvelli. Jafnframt felast í verkinu rif tveggja vallarsvæða núverandi æfingavalla og rif á tveimur battavöllum. Ath. nýjum battavelli verður einnig komið fyrir við Flataskóla, til viðbótar við þann sem sýndur er á meðfylgjandi teikningu.

Smelltu á stækkunarglerið í horni myndarinnar til að stækka hana.
Framkvæmdir við Ásgarð - Garðabær