Fyrirkomulag vegna framkvæmda við Stjörnuvöll

Framkvæmdir við Stjörnuvöll við Ásgarð standa nú yfir og hafa þær haft nokkur áhrif á umhverfi nemenda og starfsfólks í Flataskóla og Garðaskóla.
Fulltrúar umhverfissviðs Garðabæjar hafa átt í góðu samtali við skólastjórnendur um hagkvæmt fyrirkomulag og aðgerðir til að tryggja öryggi nemenda og draga eins og kostur er úr áhrifum framkvæmdanna á skólastarfið.
Öryggi við framkvæmdasvæðið
Frá og með mánudeginum 24. ágúst hefur sérstakur vaktmaður verið á staðnum sem fylgir vörubílum til og frá framkvæmdasvæðinu. Hlutverk hans er meðal annars að vakta aðgangshlið svæðisins og tryggja öryggi nemenda þegar umferð vinnuvéla eða annarra ökutækja fer um svæðið.
Jafnframt er hafin vinna við að loka suðurhlið, þar sem suðurálman var áður. Gert er ráð fyrir að þeirri framkvæmd ljúki á næstu tveimur vikum. Einnig verða gerðar breytingar á afmörkun svæðisins og bílastæðum við skólann með það að markmiði að bæta öryggi og umferðarflæði.
Leik- og hreyfiaðstaða
Unnið er að því að bæta leik- og hreyfiaðstöðu við Flataskóla. Það sem gert hefur verið eða er í vinnslu er:
- uppsetning þriggja pókóvalla
- uppbygging pannavallar
- uppsetning á körfum við handboltavöll og fyrir framan hús
Þessar framkvæmdir eru ætlaðar til að bæta leik- og íþróttaaðstöðu nemenda meðan á framkvæmdunum stendur.
Stærsti hluti þyngri framkvæmda er loki og ráðist hefur verið í hreinsun svæða í kringum skólann. Svæðið verður hreinsað reglulega meðan á vinnunni stendur.
Áætlað er að núverandi framkvæmdaráfanga ljúki um 20. september. Að því loknu verður hafist handa við lagningu gervigrass á völlinn og er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki um mánaðamót október og nóvember.
Að lokum viljum við hvetja starfsfólk og nemendur til að koma gangandi eða hjólandi á svæðið til að draga úr umferðarálagi.
Sjá einnig: Framkvæmdir við Ásgarð – Garðabær