Beint í efni

Fyrr­ver­andi starfs­fólki boð­ið í heim­sókn

Fréttir
07.05.2026

Sú skemmtilega hefð hefur myndast hjá Garðabæ að ár hvert er starfsfólki sem látið hefur af störfum á bæjarskrifstofu Garðabæjar sökum aldurs boðið í sérstaka móttöku. Þetta hefur verið gert frá árinu 2017 við góðar undirtektir.

Núverandi starfsmönnum bæjarskrifstofu er einnig boðið í móttökuna. Þá myndast ávallt skemmtilegar umræður þar sem gamlir tímar eru rifjaðir upp og núverandi verkefni og áherslur eru borin saman við vinnu og verkefni fyrri tíma.

Í síðustu móttöku, sem fram fór miðvikudaginn 6. maí sl., var byrjað á að fara í rútuferð undir leiðsögn Almars Guðmundssonar bæjarstjóra. Þá var förinni m.a. heitið út á Álftanes þar sem félagsaðstaðan við Lambamýri var skoðuð.

Tónlistarfólkið Matthías Helgi Sigurðarson og Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir fluttu nokkur lög fyrir viðstadda.