Beint í efni

Fyrsti hluti af lang­tíma­hættu­mati vegna hrauna­vár á Reykja­nes­skaga kom­inn út

Fréttir
21.04.2026

Í dag komu út tvær skýrslur um langtímahættumat vegna hraunvár á Reykjanesskaga, en þær eru hluti af umfangsmiklu verkefni Veðurstofunnar í að meta heildstætt eldfjallavá á öllum Reykjanesskaganum.

Alls eru komnar út fjórar skýrslur í verkefninu sem hófst snemma árs 2024 og á að ljúka 2027. Á þessu ári bætast við fjórar skýrslur um sprunguvá, tvær skýrslur til viðbótar um hraunavá og ein skýrsla um jarðskjálftavá. Skýrslur um gjóskufall, gasmengun og grunnvatnsmengun fylgja svo í kjölfarið á næsta ári. Að taka saman mat á eldfjallavá í einu verkefni fyrir svæði þar sem til staðar eru sjö eldstöðvakerfi, sextán sveitarfélög og fjöldi mikilvægra innviða, er umfangsmikið verkefni og í raun einstakt á heimsvísu.

Langtímahættumat vegna hraunavár segir til um hvaða svæði eru möguleg gosupptakasvæði og hvaða svæði gætu verið útsett fyrir hraunflæði út frá gossögu svæðisins. Megin markmiðið með matinu er að draga úr tjóni með áherslu á innviði og eru niðurstöðurnar mikilvægt innlegg í skipulagningu byggðar og landnýtingar.

Skýrslan veitir ítarlegar upplýsingar um þau svæði sem eru útsett fyrir hraunvá og niðurstöðurnar nýtast þeim sem sinna skipulagningu byggðar, rekstraraðilum mikilvægra innviða og viðbragðsaðilum m.a. með uppfærslum á viðbragðsáætlunum

Niðurstöður í skýrslunum styðja við það sem þegar var vitað og eru ekki að umbylta þekkingu á hvar hraunavá steðjar að byggð og innviðum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður langtímahættumats svara ekki því hvað telst vera „ásættanleg áhætta“ hvað varðar búsetu eða starfsemi á svæðinu, en þær gefa hins vegar forsendur fyrir slíkt samtal og ákvörðunartöku og verða mikilvægt tæki í höndum sveitarstjórna á svæðinu við skipulag byggðar og atvinnustarfsemi til framtíðar.

Samhliða útgáfu af skýrslunum hefur Veðurstofan opnað vefsíðu og gagnvirka kortasjá þar sem hægt er að skoða niðurstöður og efni skýrslnanna nánar.

Skýrslurnar og nánari upplýsingar má nálgast hérna, á almannavarnir.is.

Sjá einnig: Samantekt og skýrslur | Veðurstofa Íslands