Beint í efni

Garða­bær og Júdó­fé­lag Garða­bæj­ar und­ir­rita sam­starfs­samn­ing

Fréttir
14.10.2026

Garðabær og Júdófélag Garðabæjar hafa undirritað samstarfssamning um eflingu barna- og unglingastarfs í júdó í bænum.

Samkvæmt samningnum veitir Garðabær félaginu styrk vegna þjálfunar barna og ungmenna. Félagið fær jafnframt aðstöðu til júdóæfinga í íþróttasölum bæjarins í samráði við íþróttafulltrúa Garðabæjar.

Markmið samstarfsins er að byggja upp öflugt og skipulagt barna- og unglingastarf í júdó, meðal annars með reglulegum æfingum, námskeiðum og kynningarstarfi í grunnskólum bæjarins. Júdófélagið getur einnig boðið upp á æfingar fyrir fullorðna.

Í samningnum er lögð áhersla á faglegt og ábyrgt starf. Þjálfarar og leiðbeinendur skulu hafa tilskilda þekkingu eða menntun og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem starfa með börnum og ungmennum. Þá skal félagið vinna samkvæmt reglum ÍSÍ og leiðbeiningum um meðal annars kynferðislegt áreiti, einelti og forvarnir. Áhersla skal einnig lögð á að huga sérstaklega að þátttöku fatlaðra barna og ungmenna.

Samningurinn gildir til ársloka 2028.