Garðabær og Tennisfélag Garðabæjar undirrita samstarfssamning

Garðabær og Tennisfélag Garðabæjar hafa undirritað samstarfssamning um eflingu barna- og unglingastarfs í tennis í bænum. Samningurinn gildir til ársloka 2028.
Í samningnum er lögð áhersla á áframhaldandi markvisst starf TFG á félagssvæði sínu og að félagið mæti þörfum fatlaðra barna og ungmenna.
Í samningnum segir m.a. að aðalstjórn beri ábyrgð á að félagið og allar deildir þess kynni sér, innleiði og starfi samkvæmt leiðbeiningum og verklagsreglum ÍSÍ um kynferðislegt áreiti í íþróttum. Félagið skal setja upp áætlanir varðandi eineltismál og njóta samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við þeim. Þar skal byggt á forvarnastefnu bæjarins þar sem m.a. kemur fram áhersla á að uppræta og vinna gegn einelti, finna fyrirbyggjandi lausnir og auka samvinnu allra uppeldisaðila til að uppræta einelti í skólum og félagsstarfi í Garðabæ.
Samningur þessi gildir til ársloka 2028.