Beint í efni

Garða­skóli sigr­aði Fjár­mála­leik­ana 2026

Fréttir
19.04.2026

Garðaskóli bar sigur úr bítum í árlegri keppni Fjármálaleikanna 2026, sem haldnir voru níunda árið í röð í tilefni alþjóðlegrar fjármálalæsisviku.

Að keppninni stendur Fjármálavit, fræðsluvettvangur um fjármálalæsi sem býður upp á fjölbreytt námsefni fyrir nemendur.

Um 200 nemendur í Garðaskóla tóku þátt í keppninni, en alls voru um 2.000 nemendur úr 50 grunnskólum víðs vegar að af landinu sem tóku þátt í ár. Í Fjármálaleikunum svara nemendur fjölbreyttum spurningum sem snúa meðal annars að vöxtum, sparnaði, tryggingum, réttindum og skyldum á vinnumarkaði, lífeyrissparnaði og öðrum þáttum fjármálalæsis.

Nemendur Garðaskóla hlutu bikar og ávísun að upphæð 250.000 krónur fyrir sigurinn. Auk þess mun skólinn keppa fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni ungmenna í fjármálalæsi sem fram fer dagana 18.–19. maí næstkomandi í Brussel í Belgíu.

Á heimasíðu Fjármálavits er haft eftir Andra Rafni Ottesen, kennara við Garðaskóla: „Við kennararnir í Garðaskóla erum mjög stoltir af nemendum okkar en það voru um 200 krakkar í 10. bekk sem tóku þátt í keppninni fyrir hönd skólans. Við tókum þá ákvörðun strax í haust að taka þetta föstum tökum. Við fundum að það var mikil samvinna meðal nemenda og það er einmitt það sem er gott, þau læra að ræða saman um fjármálin,“ segir Andri Rafn.

„Við höfum alltaf tekið stóra og mikla lotu í 10. bekk í fjármálalæsi en erum nú farin að færa fræðsluna neðar í 8. og 9. bekk. Við sjáum að það munar miklu að krakkarnir séu komnir með grunn þegar þeir mæta í 10. bekk en þá er farið vel í bókina Fyrstu skref í fjármálum sem við fáum frá Fjármálaviti. Okkur hefur fundist áhugi nemenda vera fljótur að koma þegar þeir fá tækifæri til að læra um fjármálin og að gera þau persónuleg eins og að láta þau spara fyrir einhverju sem þau langar í og hvað felst í því að vera í vinnu og fá laun svo eitthvað fátt sé nefnt,“ segir Andri Rafn Ottesen.

Nánar má lesa um Fjármálavit og Fjármálaleikana hér.

Til hamingju Garðaskóli!