Beint í efni

Glæpa­k­viss með Katr­ínu Jak­obs­dótt­ur

Fréttir
02.09.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Katrín Jakobsdóttir lætur gæsahúðina rísa og stýrir æsispennandi spurningarkeppni á Bókasafni Garðabæjar.

Hið íslenska glæpafélag er 25 ára í ár og í tilefni afmælisins hefur Ævar Örn Jósepsson formaður félagsins samið frábærar og alræmdar spurningar fyrir bókasöfnin í landinu. Spurningakeppnin haldin á mörgum almenningsbókasöfnum samtímis, í aðdraganda Bókasafnsdagsins sem ávallt er fagnað í september.

Bókasafn Garðabæjar býður því upp á Glæpakviss þann 5. september klukkan 17:00.

Það verður hryllilega góð stemning, glæpsamlega góðar veitingar og leyndardómsfull verðlaun í boði fyrir þau sem þora að mæta.

Ekki láta þig og þitt lið vanta.

Frekari upplýsingar um keppnina og skráning er á netfangið: asbjorgbj@gardabaer.is