Gott sumar hjá Vinnuskólanum
Starfið hjá Vinnuskóla Garðabæjar hefur gengið vel í sumar en alls voru 667 ungmenni í 8.–10. bekk skráð í vinnu.
Nú er lokavika almennrar garðvinnu hjá Vinnuskóla Garðabæjar runnin í hlað. Starfið hefur gengið vel í sumar en alls voru 667 ungmenni í 8.–10. bekk skráð í vinnu hjá vinnuskólanum. Flest ungmenni voru í almennri garðvinnu en einnig hafa ungmenni unnið við aðstoð á sumarnámskeiðum félaga og í störfum hjá leikskólum bæjarins.
Meðal helstu verkefna sumarsins í garðvinnunni voru umhirða beða, rakstur túna og hreinsun gangstétta. Auk vinnunnar fengu ungmenni sem voru að klára 8. bekk einn dag í viku þar sem hefðbundið starf var brotið upp. Á þeim dögum var m.a. boðið upp á forvarnarfyrirlestur gegn vímuefnum, fræðslu um fólk með fötlun, kynningu á launaseðli og síðast en ekki síst var hópefli stór þáttur í starfinu þessa uppbrotsdaga.
Rigningartíð í fréttunum
Mikið hefur verið fjallað um vætutíð júlímánaðar á Suðvestur horni landsins þetta árið. Fréttastofa RÚV heimsótti hress og kát ungmenni í Vinnuskóla Garðabæjar og tók þau tali í rigningunni. Umfjöllunin var birt í fréttatíma sjónvarps 20. júlí sl. og hér má sjá hlekk í fréttina.
Skjáskot úr fréttatímanum:



