Beint í efni

Hækk­un sjó­varn­ar­garða á Álfta­nesi

Tilkynningar
27.03.2026

Framkvæmdir við hækkun sjóvarnargarða á Álftanesi eru enn í fullum gangi og næstu vikur verður unnið að hækkun og endurbótum á sjóvarnargarði við Höfðabraut.

Framkvæmdir Vegagerðarinnar og Garðabæjar við hækkun sjóvarnargarða á Álftanesi eru enn í fullum gangi. Í lok janúar var hafist handa við hækkun sjóvarnargarða á 540 metra kafla við Kasthúsatjörn en nú er verkinu framhaldið og þá á að fara í eftirfarandi verk:

  • U.þ.b. 50 metra framhald á núverandi sjóvörn á Hliðsnesi ásamt nýjum 300 metra kafla austan við núverandi vörn.
  • Endurbætur og hækkun á um 140 metra kafla við Höfðabraut.

Búast má við umferð vinnuvéla við Höfðabraut næstu vikur vegna þessa. Áætlað er að vinna við Höfðabrautina næstu 2-3 vikur.

Verkinu í heild verður lokið eigi síðar en 15. maí 2026.