Beint í efni

Há­vaxnar undra­verur heim­sóttu Garða­bæ

Fréttir
10.06.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Listahátíð heimsótti Garðabæ með atriðinu ,,Rauðglóandi götuleikhús" laugardaginn 4. júní sl. Um var að ræða hluta af opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík

Listahátíð heimsótti Garðabæ með atriðinu ,,Rauðglóandi götuleikhús" laugardaginn 4. júní sl. Um var að ræða hluta af opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík sem einnig fór fram í miðbæ Reykjavíkur og í Reykjanesbæ. Það viðraði vel fyrir götuleikhúsið þennan dag, sólskin og logn, og hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar mættu í Garðabæinn og gengu frá Litlatúni yfir á Garðatorg. Fjöldi fólks fylgdi þeim á leiðinni sem og voru fjölmargir mættir á Garðatorgið til að fylgjast með atriði götuleikhússins. Undraverurnar vöktu sannarlega mikla lukku og áhorfendur á öllum aldri kunnu vel að meta þennan listviðburð á heimsmælikvarða sem boðið var upp á í Garðabænum í samstarfi Garðabæjar og Listahátíðar í Reykjavík.

Götuleikhúsið samanstendur af hollenska leikhópnum Close-Act Theatre sem hefur starfað í hartnær þrjátíu ár og vakið athygli víða um lönd fyrir leiftrandi götuleikhússýningar sem hrífa áhorfendur með sér inn í veruleika þar sem allt getur gerst.

Hér á fésbókarsíðu Garðabæjar má sjá fleiri myndir frá heimsókn götuleikhússins í Garðabæ.

Rauðglóandi götuleikhús - opnunaratriði listahátíðar

Rauðglóandi götuleikhús - opnunaratriði listahátíðar

Rauðglóandi götuleikhús