Heimsókn í Krók

Yfir sumartímann er Krókur opinn almenningi á sunnudögum frá klukkan 11:30-14:30.
Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Krókur er staðsettur í nágrenni samkomuhússins á Garðaholti. Yfir sumartímann, frá júní og út ágúst, er Krókur opinn almenningi á sunnudögum frá klukkan 11:30-14:30. Aðgangur er ókeypis.
Saga Króks
Um vorið 1934 fékk Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir ábúð á Króki en maður hennar var Vilmundur Gíslason. Þau hjónin áttu fjögur börn og Guðrún Sveinsdóttir móðir Vilmundar bjó einnig hjá þeim. Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir (kölluð Tobba) var fædd 1. maí árið 1899. Í Króki var búið allt til ársins 1985 þegar Þorbjörg lést.

Afkomendur Þorbjargar og Vilmundar í Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998 með því skilyrði að bærinn yrði endurbyggður. Jón Nordsteien arkitekt stjórnaði endurgerð bæjarins og Einar Hjartarson húsasmíðameistari var fenginn til að vinna verkið.
Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar.

Í Króki er eitt herbergi sem nýtist sem vinnuaðstaða fyrir fræðafólk og rithöfunda. Í öðrum rýmum hússins eru varðveittir gamlir gripir. Systurnar Elín og Vilborg Vilmundardætur höfðu umsjón með uppröðun húsmuna.
Hópar sem vilja skoða Krók geta haft samband við menningarfulltrúa Garðabæjar, Ólöfu Breiðfjörð, á netfanginu olof@gardabaer.is